Látum skoðanir okkar heyrast..!!

Frábært að sjá að fólk lætur í sér heyra af og til...Þetta er búið að vera þvílíkt valdatafl í borginni undanfarið að borgin og borgarbúar hljóta á ýmsan hátt að líða fyrir.  Mér finnst í raun frábært að mótmæli eru að færast í aukana á Íslandi.  Á meðan þau fara friðsamlega fram, en ekki fer á milli mála um hvað ræðir, þá er þetta fín leið fyrir okkur almenning í landinu til að reyna að hafa áhrif á stjórnvöld.  Reyndar ættum við líka að sýna hug okkar og leggja áherslu á ánægju eða óánægju þegar kemur að því að ráðstafa atkvæðum okkar í kosningum, en einhvern veginn finnst mér það oft ekki gerast nógu afgerandi....Vonandi á það eftir að breytast í kjölfar þess að fólkið í landinu lætur meira í sér heyra þegar á reynir!!
mbl.is Mótmælt fyrir utan ráðhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Lára

heyr heyr!!

Guðný Lára, 28.8.2008 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband