21.8.2008 | 10:11
Látum skoðanir okkar heyrast..!!
Frábært að sjá að fólk lætur í sér heyra af og til...Þetta er búið að vera þvílíkt valdatafl í borginni undanfarið að borgin og borgarbúar hljóta á ýmsan hátt að líða fyrir. Mér finnst í raun frábært að mótmæli eru að færast í aukana á Íslandi. Á meðan þau fara friðsamlega fram, en ekki fer á milli mála um hvað ræðir, þá er þetta fín leið fyrir okkur almenning í landinu til að reyna að hafa áhrif á stjórnvöld. Reyndar ættum við líka að sýna hug okkar og leggja áherslu á ánægju eða óánægju þegar kemur að því að ráðstafa atkvæðum okkar í kosningum, en einhvern veginn finnst mér það oft ekki gerast nógu afgerandi....Vonandi á það eftir að breytast í kjölfar þess að fólkið í landinu lætur meira í sér heyra þegar á reynir!!
Mótmælt fyrir utan ráðhúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
heyr heyr!!
Guðný Lára, 28.8.2008 kl. 17:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.