18.2.2009 | 09:41
Hamingjan býr í íslendingum
Ég held að Weiner hafi mikið til síns máls og er ekki alveg að fatta bloggið um hamingjuna í flöskunni hér á undan. Það eru nú ekki allir Íslendingar alltaf fullir eða..? Ég held við séum yfirleitt frekar ákveðin, dugleg og ánægð með lífið. Er ekki sér íslenskt máltækið..þetta reddast? Og sem dæmi: eftir að kreppan skall á og erfiðleikar fóru að kníkja dyra hjá ansi mörgum hér á landi, hef ég ekki heyrt uppgjöf í fólki heldur eru flestir í því að leita leiða, þrátt fyrir pirring og reiði út í stjórnvöld. Við höldum okkar striki, fækkum utanlandsferðum en hættum ekki að hafa gaman af því að vera til....við erum bara hamingjusöm á öðrum vettvangi en áður. ÞETTA REDDAST ALLT SAMAN!
Segir Íslendinga enn hamingjusama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ég held að það sé heilmikið til í þessu hjá þér,finnst ég einmitt hafa fundið þetta í kringum mig.
ingileif Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 09:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.